mánudagur, 12. mars 2007

Pósturinn Páll

Pósturinn flaug inn um lúguna áðan svona rétt eins og hann gerir flesta daga en það sem vakti athygli mína að það var búið að rjúfa innsiglið á einu blaðinu. Ekki að það valdi mér neinum "raunum" alltaf gaman að fletta svona blöðum stútfullum af allskonar flíkum í öllum stærðum og regnbogans litum en HALLÓ það var merkt mér. EN skildi Pósturinn Páll opna umslögin yfir gufu? eða gegnumlýsa :o

3 ummæli:

Kaffikella sagði...

það er svona að búa í þorpi satans. allir með trýnið í annars koppi!

Kaffikella sagði...

Takk fyrir að bjarga börnunum mínum í gær :o)

Gleðiraunir sagði...

Stenst ekki litla sæta ljósálfa, hvað þá þegar þeir skjálfa úr kulda

hvað er þetta satans alltaf ??